09. október 2006 klukkan 03:03
Jæja Forgarðurinn er enn og aftur dauður vegna áfengisneyslu og því sé ég mig tilneyddan til að halda þessari síðu gangandi.
Lífið hér í Californiu gengur sinn vanagang. Fuglar vekja mig á hverri morgunstund með angurværum söng. Vanalega fylgir köllun frá Hróbjarti strax á eftir bitrum söng kráknanna sem átt hafa betri tíma í trjánum hér í mengunnarfullri Californiu. 'Gunnmæster' heyrist í Morgunroðanum þegar hann vekur mig í morgunnmat. Það er vaknað fyrir allar aldir hér til að fylla kransæðarnar með feitu beikoni og eggjum. Oft eru líka pönnukökur baðar í hlynsíropi með í brekföstunni. Málið er bara að við Böddi Forgarðar höfum ekkert að gera KL 8 á morgnanna nema að kveikja á 62 tommu sjánvarpinu okkar og horfa á viðstöðulausan Walker Texas Ranger með ofur Chuck Norris!! Það er það besta í heiminum. Hann er svo kjánalegur að það er óendanlegt skemmtannagildi í honum. Við erum að tala um mann sem að notar lifandi kóbraslöngu sem smokk og fer svo í viðsöðulausar samfarir. Það er heimsmet. og staðfest. Talandi um heimsmet þá var heimsmetið í heimsmetum slegið í gær og þrí-staðfest sem er líka heimsmet. Heimsmetin eru eftirfylgjanndi
Heimsmet:- Þjálfun á Bödda Forgarðar
- Viðstöðulausir laugardagar í Ameríku á Logan
- Besti veitingastaður í heimi á Grochos Village
- Bestu viðstöðulausu þjónar í heimi á Grochos Village
- Besta kjöt í heimi á Grochos Village
- Besti brandari í heimi á Logan
- Drykkja á Löngu Íslandi ístéi á Bödda Forgarðar
- Drykkja á Brasilískum Brahmabjór á Logan
- Át á eðalkjöti frá Brasilíu á Hannah
- Flestu tvífarar á einum stað á Grochos Village. Þar voru Ben Stiller, Dabbi eigandi amour, Beggi Bess, Colin Stapp, Andres barþjónn á Amour, Bibbi frændi og Linda Hamilton sem lék í Terminator! Ótrúlegt heimsmet!
- Þjórfé í Ameríku á Logan. ALDREI gefa tip þegar þú ert fullur, gaf 200% þjórfé á barnum!!
- Fylli í Ameríku á Forgarðinn. Hann drakk ógeðslega mikið af ístéi frá Löngu Íslandi
En mesta heimsmetið var ferðin heim sem tók 2 tíma. Það byrjaði þegar við yfirgáfum Grochos og héldu af stað til simi valley sem á að vera hálftíma í burtu. Jóhanna viltist og við vorum komin lengst í rassgat þegar Forgarðurinn muldrar að hann þurfi að pissa. Við beigðum inní eitthvað raðnauðgaralegasta húsasund sem ég hef séð og Forgarður hoppar út, tekur viðstöðulaust í tittlinginn og byrjar að míga. Ég þorði ekki öðru en að stíga út og passa að enginn raðnauðgari komi og misnoti ástkærann frænda minn. Jóhanna var orðin frekar hrædd og líf sitt þannig að Forgarður ætlaði að pissa hraðar og tók að rembast við að míga. Átökin voru slík að hann rak svona hrikalega við að ég held að hann hafi skitið á sig! Ég spurði hann hvort hann hafi misst saur og hann sagði ' Já! það vill enginn **** útskitnu karlmannsrassgati'. Ég gat ekki annað en dáðst að útsjónarsemi frænda míns, að verja sig frá nauðgurum með að skíta á sig. En vitskuld skeit hann ekki á sig þannig að ferðin hélt áfram. Eftir klukkutíma akstur í óvissuna lentum við í umferðarteppu sem ætlaði aldrei að losna. Það kom svo í ljós að það hafði kviknað í bíl á miðri hraðbrautinni og logarnir risu eins og eldar helvítis og leið mér eins og Dante á ferð hans gegnum 9 hringi hreinsunareldsins. En loks fengum við aflausn synda okkar og máttum halda leið okkar til ríkis ljóss og friðar. Ég lagði mig í aftursætinu og ætlaði að fá smá svefn en var truflaður af einhverju blautu sem var að úðast létt yfir mig. Ég pældi ekki mikið í þessu fyrr en Jóhanna kallar 'Gunni sjáðu, SJÁÐU!!' ég opna augun og við mér blasir blindfullur Forgarður að ÆLA út um gluggann á 130km hraða sem er HEIMSMET!!! Við vorum á hraðbraut Ronalds Regans og gátum ekkert stoppað eða hægt á hraðanum þannig að ælan varð bara að skella á bílnum fyrir aftan okkur!! Forgarður var ekki fyrr búinn að skrúfa rúðuna upp þegar hann opnar aftur og aftur stendur spían út úr honum og skellur enn á bílnum fyrir aftan okkur!! Djöfull sem sá maður hefur orðið hissa að fá íslenska ælu á bílinn sinn. Við Jóhanna vorum í hláturkasti í þangað til að við komum í Carver Court í Simi en Forgarður var alveg steinrotaður. Hann vaknaði reyndar þegar við áttum 10 metra í húsið okkar, steig út og ældi á götuna. Þegar við lögðum bílnum hélt Hanna á sínum heittelskaða inn í hús á meðan ég þreif jeppan okkar sem var virkilega útældur og ógeðslegur. Forgarður endaði svo kvöldið með að sofna inná klósetti. Virkilega gott kvöld og mikið um timburmenn hjá okkur Forgarði en hann er reyndar bara veikur.
Svona er Ameríka í dag!
Svo vill ég óska Ingþóri og Ásu innilega til hamingju með gullfallegan strák sem Ása ól á dögunum. Til hamingju Ingþór og Ása, hlakka til að hitta litla figtherinn ykkar